


Skráning hafin - aðeins tvö laus pláss fyrir sumarið
Sumarþjálfun
Sumarið 2026 verður boðið upp á Sumarþjálfun frá maí til ágúst. Um er að ræða takmarkað prógram sem er hannað fyrir kylfinga sem vilja halda samfellu í þjálfun og fá reglulega leiðsögn yfir sumarið. Hugsunin er að þetta sé þjálfunarferli - ekki stakir kennslutímar.
Markmiðið er að þú bætir þig sem kylfingur í heild sinni - bæði tæknilega, en ekki síður í ákvarðanatöku og leikskipulagi á vellinum.
Sumarþjálfun felur í sér:
-
2*30 mínútna kennslutímar í mánuði (maí - ágúst)
-
Sveigjanleg bókun eða fastir tímar
-
Aðgangur að CoachNow fyrir endurgjöf á milli tíma
-
9 holu spilakennsla einu sinni í sumar þar sem farið er yfir leikskipulag, ákvarðanatöku, kylfuval og hvernig við komum breyttri hugsun út á golfvöllinn.
Hægt er að taka þátt sem einstaklingur eða sem par (2 saman)
Verð:
-
Einstaklingur: 30.000 kr per mánuð
-
Par / 2 saman: 40.000 kr per mánuð
Aðeins 20 pláss eru í boði þannig áhugasamir eru hvattir til þess að ganga frá skráningu sem allra fyrst. Skráning fer fram í tölvupósti á netfangið david@premiumgolf.is
CoachNow – þín eigin æfingaaðstaða á netinu
Allir kylfingar sem skrá sig í sumarþjálfun fá sitt eigið svæði á CoachNow, þar sem samskipti við kennara fara fram.
-
Myndbönd frá fyrri kennslutímum til hliðsjónar við eigin æfingar
-
Þú getur sent inn eigin myndbönd
-
Kennarinn svarar með endurgjöf og leiðbeiningum
Um Premiumgolf
PremiumGolf býður upp á golfkennslu í hæsta gæðaflokki. Allt kapp er lagt á að kennslan sé sniðin að þörfum nemandans og er kennslan því alltaf persónuleg og einstaklingsbundin. Markmið okkar er að gera þig að betri kylfingi til framtíðar.
Við bjóðum upp á margvíslega þjónustu, allt frá stökum kennslutímum upp í þjálfun yfir lengri tímabil. Til að hámarka árangur mælum við alltaf með því að festa kennslutíma með reglulegu millibili.
Fyrir nánari fyrirspurnir, hópakennslu eða námskeið fyrir fyrirtæki endilega hafið samband á premiumgolf@premiumgolf.is.

